fimmtudagur, júní 22, 2006

Mac eða PC

Apple hefur verið að gera góða hluti síðustu ár og komið með ferska tóna inn í tölvubransan. Það er auðvelt að elska einfaldleikan við iPod og hvernig viðmótið allt er hannað í kringum notandan. Gamli microsoft risinn virðist stundum hanna hugbúnað fyrir nörda en ætlar að reyna að bæta ráð sitt með næsta stýrikerfi Windows Vista og Office 2007. Kíkjið á nýju auglýsingarnar frá Apple, eins og maðurinn sagði "It´s funny because it´s true": http://www.apple.com/getamac/ads/.

mánudagur, júní 12, 2006

Draumalandið Kenýa

Fór ásamt Lalla vini mínum í tíu daga hópferð til Kenýa í austur Afríku um páskana með ferðaskrifstofunni Rover Expeditions http://www.afrika.is/. Fyrir ferðina sá ég fyrir mér að skoða dýrin í Lion King og að sjá svartar konur með potta á höfðinu. Ég hafði reyndar rétt fyrir mér en svo var líka svo margt annað áhugavert sem kom á hressilega á óvart.

Það fyrsta sem vakti undrun er að þarna er fallegasta strönd sem ég hef augum litið. Hvítur sandurinn, blátt hafið og pálmatrén blaka í hafgolunni. Hótelið sem við vorum á var hreint ævintýralegt með háreystum skrákofum og topp þjónustu. Fólkið er mjög gott og allir heilsa manni með “Jambo” og ef það er eitthvað vandamál þá segja kenýabúarnir “Hakunama tata” eða engar áhyggjur. Stress er ekki til og allar tímasetningar eru mjög sveigjanlegar. Mjög gott fyrir ofurstressaða Íslendinga.

Þegar komið var út fyrir hótelsvæðið blasti við annar veruleiki. Kenýa er land mikilla andstæðna og fátæktin víða mikil. Þrátt fyrir allt þá virðist fólkið hamingjusamt þó sumir hafi vart meira en nokkrar spítur yfir hausinn á sér. Fólkið utan borgana lifir víða sjálfsþurftarbúskap, sækja vatnið í bruninn, rækta plöntur og hænur og sumir eiga geit. Markmiðið er að eiga mat fyrir daginn í dag en ekki að eignast 42” flatskjá sjónvarp.

Hápunktur ferðarinnar var safaríferðin í Masa Mara þjóðgarðinum í Kenýa. Það er hreint ótrúleg frelsistilfinning að ferðast um fagrar slétturnar og skoða í dýrin í þeirra rétta umhverfi. Við sáum ljón, hlébarða, nashyrninga, gasellur, buffaloa, gnýi, hrægamma, strúta, sjakala, gíraffa, fíla, sebrahesta, flóðhesta og svo óteljandi fleiri. Á kvöldin sátum við í veiðikofanum, fræddumst um dýrinn og drukkum gin í tonic meðan leðublökurnar flugu í kringum okkur.

Þessi ferð var algört ævintýri og þakka ég Rover Expedition kærlega fyrir stórkostlega upplifun.





Posted by Picasa

sunnudagur, júní 11, 2006

Nýr jarðarbúi

Harpa systir og Adam unnusti hennar eignuðust lítinn dreng í morgun. Strákurinn er 16 merkur, hárfagur og mjög líkur Hörpu. Ég óska þeim kærlega til hamingju með þennan nýja fjölskyldumeðlim.

laugardagur, júní 10, 2006

Gengið á Hnjúkinn

Þann 8. mái síðastliðin gekk ég ásamt fríðu föruneyti á hæðsta tind landsins, Hvannadalshnjúk.
Ég var svoldið stressaður fyrir ferðina enda ekki í miklu gönguformi eftir töluverða bjórdrykkju og mikið letilíf undanfarna daga.

Það kom þess vegna á óvart að þetta er ekki eins erfitt og ég bjóst við. Jökullinn er brattur og gangan er í ca. 10 tíma en gengið er mestan tíman í línu og þá ræður gönguhraði hægasta mannsins í hópnum og það var sem betur fer ekki ég ;) Aðalatriðið í svona ferð er að vera með búnaðinn í topplagi og góða farastjórn því aldrei að vita hvaða aðstæður myndast upp á jökli. Við lentum t.d. í brjáluðu veðri og sáum ekki Hnjúkinn fyrr en við stóðum á honum. Í guðanna bænum vera einnig með góða sólarvörn, þrátt fyrir blindbil og svartaþoku þá vorum við eins og grillaðir humrar í andlitinu eftir ferðina.

Ferðin var farinn undir styrkri farastjórn Einars Rúnars Sigurðssonar sem er öllu vanur og hefur gengið á Hnjúkinn manna oftast eða 210 sinnum (eftir þessa ferð). Ásamt honum var úlfhundurinn "Lappi" sem er einnig öllu vanur. Upplýsingar hér: http://www.hofsnes.com/hvannadalshnukur.htm

Ferðin var í alla staða frábært og mæli ég með þessu fyrir alla þá sem vilja komast upp á toppinn í lífinu.

Myndir úr ferðinni koma fljótlega.


Posted by Picasa

föstudagur, júní 09, 2006

Er búlgaría paradís eða smaradís ?

Íslenskar ferðaskrifstofur hófu nýlega að bjóða ferðir til Búlgaríu á sólarstöndina Golden Sands við svarta hafið. Ferðirnar hafa verið auglýstar mikið undanfarið og ströndin er sögð ein sú besta í evrópu eða "Perla svartahafsins". Ég fór ásamt vinahópi í vikuferð á svæðið með Terra Nova og finn mig knúinn til að skrifa nokkur orð um þetta því ég veit að það eru fullt af íslendingum að fara þarna út í sumar.

Staðurinn leit ekki eins vel út og í bæklingnum. Þó hótelið hafi verið 4 stjörnu (Morsko Oko) og nýlega byggt þá var umhverfið ekki fallegt. Pípulagnirnar láku á mörgum herbergjum og þurfti eitt parið í hópnum að skipta um herbergi þegar það kom foss niður af efri hæðinni. Ströndinn er ágæt en svoldið subbuleg. Sem dæmi þá lenti einn úr vinahópnum í því að stíga á sprautunál á ströndinni, á blakvellinum ! Svarta hafið er heldur ekki þetta týpíska, bláa, hreina strandarhaf eins og maður sér fyrir sér heldur grátt, kalt og fullt af gróðri og marglyttum. Svo sáu stelpur úr hópnum litla slöngu í sjónum og þá var mér öllum lokið.

Þjónustan í Búlgaríu er einnig æði misjöfn og oft skelfileg í augum kröfuharðra íslendinga. Það kom fyrir oftar en einu sinni að við pöntuðum mat á veitingastað og helmingurinn að hópnum fékk matinn eftir 30 mín en hinn helmingurinn beið í aðrar 60 mín eftir sínum mat. Eins og gefur að skilja þá urðu menn oft ansi pirraðir en þjónustufólkið fór þá bara að væla líka.

Það sem var gott við Búlgaríu er að þarna er allt fáránlega ódýrt og landið með eigin gjaldmiðil "Levur". Það er einnig mjög margt í boði á litlu svæði á ströndinni t.d. strandablak, minigolf, bowling, fullt af skemmtistöðum, karókí, risastór go-kart braut, vatsrennibrautagarður ofl. Einnig eru ferðir í boði þar sem hægt er að skoða menningu landsins sem er mjög merkileg.

Nokkur ráð fyrir búlgaríufara:
  • Semjið við leigubílstjórana um verð áður en farið er af stað í ferðir. Við vorum tekinn í bossan nokkrum sinnum.
  • Ekki tipsa allt þjónustufólk eins og fararstjórarnir leggja til, tipsið fyrir góða þjónustu. Þannig lærir þjónustufólið að góð þjónusta borgar sig.
  • Ekki skipta gjaldeyri á hótelinu, þeir taka 10% þóknun. Hraðbankinn er ódýrari.

Ráð fyrir þá sem eru ekki á leið til Búlgaríu: mæli ekki með þessum stað.

Myndir á: http://bulgarinn.fotki.com