Er búlgaría paradís eða smaradís ?
Íslenskar ferðaskrifstofur hófu nýlega að bjóða ferðir til Búlgaríu á sólarstöndina Golden Sands við svarta hafið. Ferðirnar hafa verið auglýstar mikið undanfarið og ströndin er sögð ein sú besta í evrópu eða "Perla svartahafsins". Ég fór ásamt vinahópi í vikuferð á svæðið með Terra Nova og finn mig knúinn til að skrifa nokkur orð um þetta því ég veit að það eru fullt af íslendingum að fara þarna út í sumar.
Staðurinn leit ekki eins vel út og í bæklingnum. Þó hótelið hafi verið 4 stjörnu (Morsko Oko) og nýlega byggt þá var umhverfið ekki fallegt. Pípulagnirnar láku á mörgum herbergjum og þurfti eitt parið í hópnum að skipta um herbergi þegar það kom foss niður af efri hæðinni. Ströndinn er ágæt en svoldið subbuleg. Sem dæmi þá lenti einn úr vinahópnum í því að stíga á sprautunál á ströndinni, á blakvellinum ! Svarta hafið er heldur ekki þetta týpíska, bláa, hreina strandarhaf eins og maður sér fyrir sér heldur grátt, kalt og fullt af gróðri og marglyttum. Svo sáu stelpur úr hópnum litla slöngu í sjónum og þá var mér öllum lokið.
Þjónustan í Búlgaríu er einnig æði misjöfn og oft skelfileg í augum kröfuharðra íslendinga. Það kom fyrir oftar en einu sinni að við pöntuðum mat á veitingastað og helmingurinn að hópnum fékk matinn eftir 30 mín en hinn helmingurinn beið í aðrar 60 mín eftir sínum mat. Eins og gefur að skilja þá urðu menn oft ansi pirraðir en þjónustufólkið fór þá bara að væla líka.
Það sem var gott við Búlgaríu er að þarna er allt fáránlega ódýrt og landið með eigin gjaldmiðil "Levur". Það er einnig mjög margt í boði á litlu svæði á ströndinni t.d. strandablak, minigolf, bowling, fullt af skemmtistöðum, karókí, risastór go-kart braut, vatsrennibrautagarður ofl. Einnig eru ferðir í boði þar sem hægt er að skoða menningu landsins sem er mjög merkileg.
Nokkur ráð fyrir búlgaríufara:

- Semjið við leigubílstjórana um verð áður en farið er af stað í ferðir. Við vorum tekinn í bossan nokkrum sinnum.
- Ekki tipsa allt þjónustufólk eins og fararstjórarnir leggja til, tipsið fyrir góða þjónustu. Þannig lærir þjónustufólið að góð þjónusta borgar sig.
- Ekki skipta gjaldeyri á hótelinu, þeir taka 10% þóknun. Hraðbankinn er ódýrari.
Ráð fyrir þá sem eru ekki á leið til Búlgaríu: mæli ekki með þessum stað.
Myndir á: http://bulgarinn.fotki.com

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home